Næsta ráðstefna
Átjánda ráðstefnan um íslenska þjóðfélagið
Hin árlega ráðstefna um íslenska þjóðfélagið verður haldin dagana 17.-18. apríl 2026 á Höfn í Hornafirði, á vegum Nýheima þekkingarseturs. Yfirskrift ráðstefnunnar er Unga fólkið og framtíðin. Ráðstefnan er kjörinn vettvangur fyrir fræðafólk innan hug- og félagsvísinda til að kynna rannsóknir sínar, fá innsýn í störf annarra og efla tengslanet sitt. Ráðstefnan fer fram í Nýheimum, Litlubrú 2.
Nýjustu upplýsingar og dagskrá er að finna hér
Lykilfyrirlesarar
Lykilfyrirlesarar ráðstefnunnar verða tveir:
Dr. Þorvarður Árnason, forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Hornafirði og rannsóknadósent í þverfaglegum umhverfisfræðum. „Bráðnun jökla – böl eða blessun? Hamfarahlýnun í staðbundnu menningar- og samfélagslegu samhengi“.
Dr. Sunna Símonardóttir, lektor við Félagsvísindadeild Háskólans á Akureyri:„Óvissa, ábyrgð og óljós framtíð: Viðhorf ungs fólks til barneigna“.
Gagnlegar upplýsingar
- Ráðstefnugjald er 5.000 kr. á mann. Innifalið í ráðstefnugjaldi eru ráðstefnugögn og kaffiveitingar.
- Þátttakendur greiða sjálfir ferðakostnað, gistingu og máltíðir.
- Við hvetjum þátttakendur til að huga sem fyrst að gistingu og samgöngum í tengslum við ráðstefnuna.
- Flugfélagið Icelandair flýgur til Hornafjarðar, sjá nánar hér: https://www.icelandair.com/is-is/flug/flug-til-hafnar
- Frekari upplýsingar má nálgast hjá Hugrúnu Hörpu (hugrunharpa@nyheimar.is).